Fótbolti

Eiður Smári: Guardiola hefur trú á mér

NordcPhotos/GettyImages

Eiður Smári Guðjohnsen segist reikna með að hann eigi framtíð fyrir sér í herbúðum Barcelona og segir þjálfarann Pep Guardiola hafa fulla trú á sér.

Eiður sat fyrir svörum á heimasíðu Barcelona og þar segist hann síður eiga von á að fara frá Katalóníufélaginu áður en félagaskiptaglugginn lokast.

"Þjálfarinn hefur sýnt að hann er mjög ákveðinn og ákafur á æfingum. Hann hefur sagt mér að hann hafi trú á mér og ég er tilbúinn að vera áfram hjá Barcelona. Ef ekkert gerist fyrir 31. ágúst, verð ég áfram hjá liðinu," sagði Eiður og bætir við að hann reyni að láta umræðuna í fjölmiðlum ekki hafa áhrif á sig.

"Það er ekki auðvelt að vera orðaður við brottför, en ég er sterkur og læt mér nægja að hafa áhyggjur af því sem gerist á knattspyrnuvellinum. Ég er bara að hugsa um að koma mér í mitt allra besta form," sagði Eiður, en hann hefur mikið fengið að spila með Barcelona á undirbúningstímabilinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×