Sport

Serbar og Rússar með yfirburði á opna franska

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ana Ivanovic fagnar sætinu í undanúrslitunum.
Ana Ivanovic fagnar sætinu í undanúrslitunum. Nordic Photos / AFP
Það er þegar ljóst að það verður Serbi og Rússi sem mætast í úrslitum í einliðaleik kvenna á opna franska meistaramótinu í tennis.

Efsti keppandinn á styrkleikalista mótsins, Maria Sharapova frá Rússlandi, er dottin úr leik en annar Rússi hefur tekið hennar stað í undanúrslitum. Sú heitir Dinara Safina og sló Sharapovu út í 16-manna úrslitum.

Safina vann svo annan rússneskan keppanda í fjórðungsúrslitum, Elenu Dementievu, og mætir svo enn einum Rússanum í undanúrslitum - Svetlönu Kuznetsovu.

Kuznetsova er í fjórða sæti á styrkleikalista mótsins og kemur því ekki á óvart að hún komst í undanúrslit.

Hið sama má segja um Serbana í hinni undanúrslitaviðureigninni. Það eru Ana Ivanovic (2. sæti) og Jelena Kankovic (3. sæti).

Undnanúrslitin fara fram á morgun og úrslitin á laugardaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×