Fótbolti

Bróðir Messi handtekinn fyrir vopnaburð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi í leik með Barcelona í haust.
Lionel Messi í leik með Barcelona í haust. Nordic Photos / AFP

Bróðir Lionel Messi mun hafa verið handtekinn í Argentínu um helgina fyrir að bera hlaðna byssu á sér.

Matias Messi er 26 ára gamall og var sagður á gangi til síns heima í bænum Rosario í Argentínu þegar að lögreglan handtók hann.

Verði hann sakfelldur fyrir ólöglegan vopnaburð gæti hann verið dæmdur í átta ára fangelsi.

Það hefur þó tíðkast í Mið- og Suður-Ameríku undanfarin misseri að fjölskyldumeðlimum þekktra knattspyrnumanna sé rænt í þeim tilgangi að fara fram á lausnargjald.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×