Fótbolti

David Villa er eftirsóttur

NordcPhotos/GettyImages

Spænski landsliðsframherjinn David Villa er gríðarlega eftirsóttur þessa dagana ef marka má spænska fjölmiðla. Talið er líklegt að hann fari frá Valencia í sumar og hefur hann m.a. verið orðaður við félög á Englandi og Ítalíu.

Sagt er að Valencia sé tilbúið að losa framherjann til að rétta hjá sér fjárhaginn nú þegar ljóst er að liðið verður ekki í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Villa hefur þegar neitað kauptilboði frá Tottenham ef marka má spænska miðla, en sagt er að bæði Inter Milan og Real Madrid séu tilbúin að greiða fyrir hann háar fjárhæðir.

Sjálfur er Villa reyndar sagður vilja fara til Englands, en þar hefur hann ekki áhuga á að spila fyrir landa sinn Juande Ramos hjá Tottenham ef marka má fregnir dagsins.

"Ég held að ég geti gert góða hluti á Englandi, en það er auðvitað eitt að segja það og annað að gera það. Ef tilboð kæmi í mig í sumar, væri ég sannarlega til í að prófa England," sagði framherjinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×