Körfubolti

Elton Brand úr leik í mánuð

Hér má sjá aðdraganda axlarmeiðslanna hjá Elton Brand
Hér má sjá aðdraganda axlarmeiðslanna hjá Elton Brand NordicPhotos/GettyImages

Kraftframherjinn Elton Brand hjá Philadelphia 76ers getur ekki leikið með liði sínu næsta mánuðinn eða svo eftir að hafa farið úr axlarlið í leik síðustu nótt.

Þetta eru slæm tíðindi fyrir Philadelphia því liðinu hefur ekki gengið nógu vel í upphafi leiktíðar. Liðið er með 11 sigra og 14 töp og lét þjálfara sinn Mo Cheeks fara fyrir nokkrum dögum.

Brand hefur skorað 16 stig og hirti tæp 10 fráköst að meðaltali í leik það sem af er í vetur. Hann skrifaði undir 80 milljón dollara samning við Philadelphia í sumar eftir að hafa aðeins spilað átta leiki tímabilið áður vegna meiðsla á hásin.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×