Fótbolti

Eto´o tekur upp gamla siði

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Samuel Eto´o virðist vera kominn í sama farið og á síðasta keppnistímabili þegar hann kom sér í ónáð hjá þjálfara Barcelona með lélegri mætingu á æfingar.

Eto´o fór fram á að fá frí frá æfingum í byrjun vikunnar þrátt fyrir að eiga ekki verkefni með landsliði sínu líkt og flestir leikmenn Barcelona. Hann mætti svo á æfingu í gær, en var 45 mínútum of seinn á æfingu í morgun.

Þessi framkoma framherjans vekur væntanlega upp slæmar minningar hjá þjálfarateymi Barcelona, en Eto´o var einn þeirra sem sakaður var um að koma á óeiningu í búningsherbergjum Barcelona með einmitt svona uppátækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×