Körfubolti

Shaq gerir gæfumuninn hjá Phoenix

Shaquille O´Neal er duglegur að gefa hinum unga Stoudemire föðurleg ráð eins og sjá má á þessari mynd
Shaquille O´Neal er duglegur að gefa hinum unga Stoudemire föðurleg ráð eins og sjá má á þessari mynd NordcPhotos/GettyImages

Tracy McGrady, leikmaður Houston Rockets, segir að lið Phoenix Suns hafi hagnast verulega á því að næla í miðherjann Shaquille O´Neal í vetur og enginn hafi hagnast meira á því en framherjinn Amare Stoudemire.

Þetta sagði McGrady í samtali við fjölmiðla í Arizona í gær, en Houston hafði reyndar betur í viðureign liðanna í nótt.

"Þetta lið sem þeir vorum með áður var alltaf að fara að vinna marga leiki í deildarkeppninni, en þeir voru ekki að fara að gera neitt í úrslitakeppninni. O´Neal hefur breytt þessu öllu. Hann er enn óviðráðanlegur á blokkinni og enginn í Vesturdeildinni getur dekkað hann. Hann er frábær viðbót við skytturnar þeirra og svo er Amare Stoudemire greinilega að springa út undir leiðsögn hans," sagði McGrady.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×