Íslenski boltinn

HK/Víkingur lagði Keflavík

Sjöttu umferðinni í Landsbankadeild kvenna lauk í kvöld með þremur leikjum. HK/Víkingur lagði Keflavík 4-1, Fylkir vann Þór/KA 1-0 fyrir norðan og Fjölnir og Afturelding gerðu markalaust jafntefli.

Valur er í efsta sæti deildarinnar með 18 stig, KR í öðru með 15, Stjarnan í þriðja með 11 og Breiðablik og Þór/KA hafa 7 stig í 4.-5. sæti. Fylkir hefur 6 stig í sjötta sætinu og HK/Víkingur, Afturelding, Fjölnir og Keflavík hafa öll hlotið fimm stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×