Íslenski boltinn

KR vann í Garðabæ

Elvar Geir Magnússon skrifar
Breiðablik og KR unnu í kvöld.
Breiðablik og KR unnu í kvöld.

Fjórtándu umferð Landsbankadeildar kvenna lauk í kvöld með fjórum leikjum. KR er enn sex stigum á eftir Val en Vesturbæjarliðið vann 2-0 útisigur á Stjörnunni í kvöld.

Breiðablik er í þriðja sæti deildarinnar en liðið vann 3-2 útisigur gegn Fylki. Í botnbaráttunni vann HK/Víkingur góðan sigur á Aftureldingu 1-0. HK/Víkingur er í áttunda sæti með níu stig, jafnmörg og Keflavík en betri markatölu.

Fjölnir rekur lestina í tíunda sæti með átta stig en liðið steinlá fyrir Þór/KA fyrir norðan 5-0 í kvöld.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×