Sport

Ivanovic og Jankovic áfram

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ana Ivanovic átti náðugan dag á opna franska meistaramótinu.
Ana Ivanovic átti náðugan dag á opna franska meistaramótinu. Nordic Photos / AFP
Serbarnir Ana Ivanovic og Jelena Jankovic komust í morgun áfram í fjórðungsúrslit í einliðaleik kvenna á opna franska meistaramótinu í tennis.

Ivanovic er í öðru sæti á styrkleikalista mótsins og Jankovic í þriðja sæti. Þær eiga því engan möguleika á að mætast í úrslitaleik mótsins en gætu hins vegar mæst í undanúrslitunum.

Ivanovic komst í úrslitin í fyrra en tapaði þá fyrir Justine Henin sem nú hefur lagt spaðann á hilluna. Hún vann afar léttan sigur á Tékkanum Petra Cetkovska, 6-0 og 6-0.

Jankovic vann í dag sigur á Agnieszka Radwanska frá Póllandi, 6-3 og 7-6.

16-manna úrslitin klárast í dag og á morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×