Enski boltinn

Huntelaar var ekki spenntur fyrir City

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Klaas Jan Huntelaar í leik með Ajax.
Klaas Jan Huntelaar í leik með Ajax. Nordic Photos / Getty Images

Klaas Jan Huntelaar segir að hann hafi gefið lítið fyrir þann áhuga sem Manchester City hafi sýnt honum í sumar. Hann hefði hins vegar haft áhuga á að fara til Manchester United.

Huntelaar er nú á mála hjá Ajax en hefur samþykkt að ganga til liðs við Real Madrid nú eftir áramót og hefur skrifað undir samning sem gildir til loka tímabilsins 2013.

City var sagt hafa reynt að fá Huntelaar á lokadegi félagaskiptagluggans í haust en Huntelaar sagðist ekki hafa haft áhuga á því að fara til City.

„Það voru einhver lið sem sýndu mér áhuga í sumar. En þetta voru ekki þau félög sem við höfðum hugsað okkur að fara til," sagði Huntelaar í samtali við enska fjölmiðla. „Manchester City uppfyllti ekki þau skilyrði sem við settum okkur."

„Manchester United? Það hefði hins vegar getað orðið önnur saga."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×