Fótbolti

Jafnt hjá United og Arsenal

Ryan Giggs bjargaði stigi fyrir United í kvöld
Ryan Giggs bjargaði stigi fyrir United í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Arsenal og Manchester United urðu að gera sér að góðu jafntefli í leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu í knatttspyrnu í kvöld, en Real Madrid steinlá heima fyrir Juventus.

Arsenal er sem fyrr á toppi G-riðilsins eftir 0-0 jafntefli við Fenerbahce á Emirates í kvöld. Arsenal byrjaði leikinn með látum en Robin Van Persie gerði sig hvað eftir annað sekan um að misnota góð færi. Arsenal hélt áfram að sækja í síðari hálfleiknum en náði ekki að skapa sér hættuleg marktækifæri. Gestirnir fengu þar með aðeins annað stigið sitt í riðlinum og mega vel við una.

Gamla brýnið Ryan Giggs bjargaði Manchester United jafntefli í Glasgow í kvöld þegar hann skoraði jöfnunarmark liðsins á 84. mínútu eftir að Scott McDonald hafði komið skoska liðinu yfir snemma leiks. United átti 26 marktilraunir gegn aðeins 6 tilraunum heimamanna. United var mun betri aðilinn í leiknum en fór illa með færi sín og náði ekki að koma boltanum nema einu sinni framhjá Artur Buruc.

Juventus vann frækinn sigur á Real Madrid á útivelli þar sem gamla brýnið Alessandro del Piero skoraði bæði mörk ítalska liðsins.

Úrslit og markaskorarar kvöldsins:

E-riðill:

Álaborg 2 - 2 Villareal

0-1 Giuseppe Rossi ('42)

1-1 Jeppe Curth ('54)

1-2' Guillermo Franco ('75)

2-2 Anders Due ('81)

Celtic 1 - 1 Man United

1-0 Scott McDonald ('13)

1-1 Ryan Giggs ('84)

F-riðill:

Fiorentina 1 - 1 Bayern

1-0 Adrian Mutu ('11)

1-1 Tim Borowski ('78)

Lyon 2 - 0 Steaua

1-0 Juninho ('44)

2-0 Anthony Reveillere ('87)

G-riðill:

Dynamo Kiev 1 - 2 Porto

1-0 Artem Milevski ('21)

1-1 Rolando ('69)

1-2 Lucho Gonzalez ('90)

Arsenal 0 - 0 Fenerbahce

H-riðill:

Real Madrid 0 - 2 Juventus

0-1 Alessandro Del Piero ('17)

0-2 Alessandro Del Piero ('67)

BATE 0 - 2 Zenit

0-1 Pavel Pogrebnyak ('34)

0-2 Danny ('90)








Fleiri fréttir

Sjá meira


×