Fótbolti

Sevilla í þriðja sæti

AFP

Sevilla skaust í kvöld í þriðja sæti spænsku deildarinnar eftir 1-0 sigur á Villarreal á heimavelli sínum.



Villarreal spilaði manni færra lengst af í síðari hálfleik en það var Renato sem skoraði markið sem skildi liðin að í kvöld rétt fyrir hálfleik.

Sevilla er því komið með 30 stig líkt og Valencia sem er í öðru sæti deildarinnar, en Valencia hefur betra markahlutfall.

Barcelona hefur átta stiga forystu á toppnum eftir 2-0 sigur á Real Madrid í gærkvöldi.

Villarreal hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm leikjum sínum í deildinni og féll niður í fjórða sæti í kvöld. Villarreal hefur 29 stig - þremur meira en Real Madrid.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×