Fótbolti

Wes Brown missir líklega af leiknum gegn Celtic

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Wes Brown, leikmaður Manchester United.
Wes Brown, leikmaður Manchester United. Nordic Photos / Getty Images

Wes Brown gat ekki æft með Manchester United í dag vegna meiðsla og er talið líklegt að hann muni missa af leik United gegn Celtic í Meistaradeild Evrópu á morgun.

Brown hefur verið frá vegna ökklameiðsla og misst af síðustu tveimur leikjum United vegna þeirra. Gary Neville og Rafael de Silva þykja líklegastir til að leysa hann af á morgun.

Þá eru þeir Paul Scholes og Owen Hargreaves enn frá vegna meiðsla en United vann Celtic í fyrri leik liðanna í Meistaradeildinni, 3-0.

Síðast þegar liðin mættust á heimavelli Celtic vann liðið 1-0 sigur á United þökk sé marki Shunsuke Nakamura úr aukaspyrnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×