Fótbolti

Sofia fær ekki að fara í Meistaradeildina

Elvar Geir Magnússon skrifar
Leikmenn CSKA Sofia fagna ekki svona í dag.
Leikmenn CSKA Sofia fagna ekki svona í dag.

CSKA Sofia, búlgörsku meistararnir, fá ekki að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Þetta er samkvæmt ákvörðun knattspyrnusambands landsins.

CSKA Sofia á í miklum fjarhagsörðugleikum og skuldar mikið. Svo gæti farið að liðið verði dæmt niður í neðstu deildir Búlgaríu á næsta tímabili.

Í gær bannaði UEFA Portúgölsku meisturunum Porto að taka þátt í Meistaradeildinni vegna alvarlegra ásakana um tilraunir til að hagræða úrslitum heima fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×