Fótbolti

Guardiola óánægður með hegðun Messi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi í leik með Barcelona.
Lionel Messi í leik með Barcelona. Nordic Photos / AFP

Pep Guardiola, stjóri Barcelona, gat ekki leynt óánægju sinni með hegðun Lionel Messi í leik Barcelona og Malaga um helgina.

Sjónvarpsupptökur sýndu að Messi hrækti í átt að Duda, leikmanni Malaga, í leiknum sem Barcelona vann, 4-1. Messi hefur mátt þola mikla gagnrýni í fjölmiðlum á Spáni vegna þessa.

„Það er ekki gott mál þegar svona lagað gerist," sagði Guardiola. „Við munum reyna að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst aftur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×