Fótbolti

Robinho orðaður við Barcelona

NordcPhotos/GettyImages

Umboðsmaður brasilíska ungstirnisins Robinho hjá Real Madrid segir að Barcelona, Chelsea og Manchester United hafi öll áhuga á að fá hann í sínar raðir í sumar.

Mikið hefur verið slúðrað um að Chelsea sé að undirbúa risatilboð í leikmanninn, en forráðamenn Real Madrid segja hann einfaldlega ekki til sölu.

Umboðsmaður leikmannsins hefur þó ekki áhyggjur af því og segir stórliðin öll vera hrifin af honum.

"Það er bara eðlilegt að félag eins og Barcelona vilji fá Robinho. Chelsea og Manchester United vilja líka fá hann, en það lítur út fyrir að Real vilji ekki selja hann," sagði umboðsmaðurinn í samtali við Mundo Deportivo í morgun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×