Enski boltinn

Barcelona vill fá Shevchenko á láni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andrei Shevchenko, leikmaður Chelsea.
Andrei Shevchenko, leikmaður Chelsea. Nordic Photos / Getty Images

Eftir því sem kemur fram í El Mundo Deportivo í dag hefur Barcelona áhuga á að fá Andriy Shevchenko að láni frá Chelsea.

Allar líkur eru á því að Samuel Eto'o sé á förum frá félaginu og kæmi Shevchenko til félagsins til að fylla skarð hans þar.

Fram kemur í fréttinni að þetta gæti verið góð lausn fyrir bæði félög. Barcelona þyrfti ekkert að greiða fyrir Shevchenko og Chelsea myndi losna við hann af launaskrá félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×