Fótbolti

Nistelrooy úr leik hjá Real Madrid

NordicPhotos/GettyImages

Hollenski markahrókurinn Ruud van Nistelrooy hjá Real Madrid getur ekki spilað meira með liði sínu Real Madrid á leiktíðinni. Hann hefur gengist undir aðgerð vegna hnémeiðsla í Bandaríkjunum og verður frá í sex til níu mánuði.

Það var hnésérfræðingurinn Richard Stedman sem hafði yfirumsjón með aðgerðinni, en hann sá líka um Hollendinginn árið 2000 þegar hann fór í uppskurð áður en hann gekk í raðir Manchester United.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×