Fótbolti

Valencia hélt toppsætinu

David Villa skorar grimmt fyrir Valencia
David Villa skorar grimmt fyrir Valencia AFP

Valencia er enn á toppi spænsku deildarinnar í knattspyrnu eftir 4-0 sigur a´Numancia í dag. David Villa skoraði tvö mörk fyrir Valencia og hefur skorað átta mörk í sjö leikjum í vetur.

Barcelona tefldi fram nýrri miðju frá 6-1 sigrinum á Atletico um daginn vegna meiðsla lykilmanna og það nægði liðinu til 1-0 útisigurs á Bilbao. Samuel Eto´o skoraði sigurmark Barcelona um miðjan síðari hálfleik eftir undirbúning frá Thierry Henry. Þetta var fimmti sigur Barcelona í röð.

Valencia hefur 19 stig í toppsætinu, tveimur á undan Villarreal sem gerði jafntefli við Espanyol í gær - og Sevilla sem vann 1-0 sigur á Almeria í kvöld. Barcelona er í fjórða sætinu og Real Madrid í því fimmta með lakari markatölu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×