Fótbolti

Robinho vill ekki fara frá Real

Elvar Geir Magnússon skrifar

Robinho segist vilja vera áfram hjá Real Madrid en Chelsea hefur mikinn áhuga á því að fá leikmanninn.

„Ég vil vera hjá Real Madrid í langan tíma," sagði Robinho í viðtali við Marca. „Ég er mjög ánægður og vil halda áfram að spila fyrir félagið."

Robinho hefur verið í viðræðum við Real Madrid en ekki er vitað hvernig þær viðræður ganga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×