Fótbolti

Barcelona tapaði fyrsta leiknum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi í baráttu um boltann.
Lionel Messi í baráttu um boltann. Nordic Photos / AFP
Vertíðin hefst ekki vel hjá Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Barcelona. Hans menn töpuðu sínum fyrsta leik á tímabilinu fyrir Numancia á útivelli, 1-0.

Eiður Smári Guðjohnsen var á varamannabekk Barcelona en kom ekkert við sögu. Eina mark leiksins skoraði Mario á þrettándu mínútu.

Stærsti sigur dagsins var 4-0 sigur Atletico Madrid á Malaga en síðar í dag mætir Real Madrid liði Deportivo á útivelli.

Úrslit dagsins:

Athletic Bilbao - Almeria 1-3

Atletico Madrid - Malaga 4-0

Real Betis - Recreativo 0-1

Racing Santander - Sevilla 1-1

Sporting Gijon - Getafe 1-2

Osasuna - Villarreal 1-1

Numancia - Barcelona 1-0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×