Sport

Sastre heldur gulu treyjunni

Elvar Geir Magnússon skrifar
Tour de France lýkur á sunnudag.
Tour de France lýkur á sunnudag.

Spánverjinn Carlos Sastre heldur forystunni í Frakklandshjólreiðunum en á morgun verður lykiláfangi í keppninni. Sastre tók litla áhættu á nítjándu dagleiðinni í dag.

Frakkinn Sylvain Chavanel kom fyrstur í mark í dag en þá var hjólað að mestu á flatlendi.

Síðasta dagleiðin í keppninni verður á sunnudag og þá verður sigurvegari krýndur.

Sastre er með 1,24 mínútna forskot á Frank Schleck frá Lúxemborg í heildarstigakeppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×