Körfubolti

Helena stigahæst á NM 2008

Helena Sverrisdóttir er stigahæsti leikmaður Norðurlandamóts kvenna í körfubolta sem lauk um helgina í Danmörku.

Helena skoraði 69 stig í fjórum leikjum sem gera 17,3 stig að meðaltali en hún varð einnig önnur í stoðsendingum, í fjórða sæti í stolnum boltum og í 5. sæti í fráköstum samkvæmt opinberri tölfræði mótsins.

Helena var með 8,0 fráköst og 6,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Signý Hermannsdóttir tók flest fráköst og varði flest skot á mótinu og Petrúnella Skúladóttir hitti best allra fyrir utan þriggja stiga línuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×