Sport

Jankovic á toppinn

NordcPhotos/GettyImages

Serbneska tenniskonan Jelena Jankovic verður stigahæsta tenniskona heims í fyrsta sinn á ferlinum þegar næsti heimslisti verður gefinn út þann 11. þessa mánaðar og veltur löndu sinni Ana Ivanovic þar með af stalli.

Ivanovic náði toppsætinu þann 9. júní en hin 23 ára gamla Jankovic hefur nú hlotið 3620 stig gegn 3612 stigum löndu sinnar.

Jankovic verður þar með 18 konan til að ná toppsæti listans í sögunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×