Íslenski boltinn

KR vann Lengjubikarinn

Hrefna Jóhannesdóttir tekur við bikarnum í kvöld
Hrefna Jóhannesdóttir tekur við bikarnum í kvöld Mynd/Anton Brink

KR-stúlkur tryggðu sér í kvöld sigur í Lengjubikarnum með 4-0 sigri á Val í úrslitaleik sem fram fór í Egilshöllinni. KR hafði yfir 1-0 í hálfleik en Valsstúlkur misstu mann af velli um miðjan síðari hálfleik og eftir það tók KR öll völd á vellinum.

Það voru Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir sem skoruðu mörk KR í leiknum, tvö hvor, og gefur sigurinn vesturbæjarliðinu góð fyrirheit fyrir sumarið.

Nánari umfjöllun um leikinn hér á Vísi í fyrramálið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×