Fótbolti

Aragones tekur við Fenerbahce

Elvar Geir Magnússon skrifar
Luis Aragones.
Luis Aragones.

Luis Aragones mun taka við stjórn tyrneska liðsins Fenerbahce eftir Evrópumótið 2008. Þetta segja nokkrir fjölmiðlar á Spáni.

Aragones er 69 ára og er reiknað með að hann skrifi undir tveggja ára samning við tyrkneska félagið. Marca segir að þetta hafi ekki verið opinberað til að gefa Aragones frið til að stýra spænska landsliðinu á EM.

Fenerbahce er í leit að þjálfara eftir að samningar náðust ekki við Zico um nýjan samning.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×