Sport

Venus í úrslit á Wimbledon í sjöunda sinn

Venus á titil að verja á mótinu.
Venus á titil að verja á mótinu. NordcPhotos/GettyImages

Bandaríska tenniskonan Venus Williams tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum á Wimbledon mótinu í tennis í sjöunda sinn á ferlinum þegar hún lagði Elenu Dementievu 6-1, 7-6 (7/3) í undanúrslitum.

Svo gæti farið að Venus mæti systur sinni Serenu í úrslitaleiknum á laugardag, en Serena mætir kínversku stúlkunni Zheng Jie í síðari undanúrslitaviðureigninni í dag.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×