Fótbolti

Níu sigrar í röð hjá Barcelona

Barcelona er á fínum spretti í deildinni
Barcelona er á fínum spretti í deildinni AFP

Barcelona náði í kvöld þriggja stiga forystu á toppi spænsku deildarinnar með 2-0 sigri á Recreativo í lokaleik helgarinnar á Spáni.

Leo Messi og Seydou Keita skoruðu mörk liðsins og tryggðu því níunda deildarsigurinn í röð.

Eiður Smári Guðjohnsen var á varamannabekk liðsins í kvöld en kom ekki við sögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×