Sport

Federer í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Roger Federer fagnar sigri í kvöld.
Roger Federer fagnar sigri í kvöld. Nordic Photos / AFP
Roger Federer er kominn í undanúrslit á opna bandaríska meistaramótinu í tennis eftir að hafa borið sigurorð af Gilles Muller frá Lúxemborg í þremur settum.

Muller veitti Federer verðuga samkeppni í fyrsta settinu sem Federer vann í bráðabana, 7-6 (7-5).

Hann náði svo að vinna annað settið 6-4 en Muller neitaði að gefast upp og barðist áfram.

Þriðja settið vann Federer með sama mun og það fyrsta, 7-6 (7-5).

Hann mætir annað hvort Novak Djokovic eða Andy Roddick í undanúrslitum og má búast við mun erfiðari andstæðingi en Federer mætti í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×