Fótbolti

Villarreal slátrað af neðrideildarliði í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hér fagnar Villarreal marki gegn Barcelona á síðustu leiktíð.
Hér fagnar Villarreal marki gegn Barcelona á síðustu leiktíð. Nordic Photos / AFP

Fjöldi leikja fór fram í spænsku bikarkeppninni í kvöld og töpuðu úrvalsdeildarliðin Villarreal og Sevilla óvænt sínum leikjum.

C-deildarliðið Poli Ejido gerði sér lítið fyrir og hreinlega slátraði Villarreal, 5-0, en síðarnefnda liðið er enn taplaust eftir átta umferðir í úrvalsdeildinni. Jorge Malina skoraði þrennu fyrir Poli Ejido.

Þá tapaði Sevilla fyrir Ponferradina með einu marki gegn engu en Valencia vann 4-1 sigur á neðrideildarliðinu Portugalete. Barcelona og Real Madrid léku ekki í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×