Fótbolti

Villarreal enn taplaust

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Villarreal fagna marki í dag.
Leikmenn Villarreal fagna marki í dag. Nordic Photos / AFP
Fjölmargir leikir voru í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Villarreal vann 2-1 sigur á Almeria og er enn eina taplausa liðið í deildinni.

Villarreal er í öðru sæti deildarinnar, með 24 stig, einu stigi á eftir Barcelona.

Valencia er í þriðja sæti en liði vann í dag 3-0 útisigur á Getafe. Liðið er með 23 stig, rétt eins og Real Madrid.



Úrslitin í dag
:

Departivo - Espanyol 1-0

Mallorca - Athletic 3-3

Numancia - Real Betis 2-4

Osasuna - Atletico 0-0

Racing - Sporting Gijon 1-0

Villarreal - Almeria 2-1

Sevilla - Recreativo 1-0

Getafe - Valencia 0-3




Fleiri fréttir

Sjá meira


×