Íslenski boltinn

Valur burstaði Þór/KA

Elvar Geir Magnússon skrifar
Margrét Lára skoraði tvö mörk í dag.
Margrét Lára skoraði tvö mörk í dag.

Íslandsmeistarar Vals unnu 5-1 sigur í opnunarleik Landsbankadeildar kvenna en leikið var gegn Þór/KA í Egilshöll. Katrín Jónsdóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu tvö mörk hvor.

Málfríður Erna Sigurðardóttir skoraði hitt mark Vals en Bojana Besic skoraði fyrir Þór/KA undir lok leiksins.

Aðrir leikir umferðarinnar fara fram annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×