Fótbolti

Ben Foster í markið hjá United

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ben Foster.
Ben Foster.

Ben Foster mun leika sinn fyrsta Meistaradeildarleik á morgun þegar hann ver mark Manchester United gegn Celtic í Skotlandi. Edwin van der Sar er hvíldur og ferðast ekki með Evrópumeisturunum yfir til Skotlands.

Rafael Da Silva, Brasilíumaðurinn ungi, mun líklega leika í hægri bakverðinum þar sem Wes Brown og Gary Neville eru báðir fjarri góðu gamni.

Með sigri á morgun mun United komast áfram í sextán liða úrslitin þrátt fyrir að tvær umferðir séu enn eftir af riðlakeppninni. United átti ekki í vandræðum með Celtic í fyrri leiknum þar sem tvö mörk frá Dimitar Berbatov og eitt frá Wayne Rooney færðu liðinu þrjú stig.

Þrjár umferðir eru búnar af riðlakeppninni og hefur Celtic ekki enn náð að skora mark á meðan United hefur enn ekki fengið á sig mark. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×