Sport

Cavendish fyrstur í fjórða sinn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Mark Cavendish.
Mark Cavendish.

Mark Cavendish frá Bretlandi er sjóðheitur og vann aðra dagleið sína í röð í Frakklandshjólreiðunum. Hann hefur nú unnið alls fjórar dagleiðir.

Ástralinn Cadel Evans klæðist enn gulu treyjunni, er efstur í heildarstigakeppninni. Hann hefur eins sekúndna forskot á Frank Schleck frá Lúxemborg.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×