Körfubolti

San Antonio og Utah jöfnuðu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr leik LA Lakers og Utah Jazz.
Úr leik LA Lakers og Utah Jazz.

San Antonio og Utah unnu sigra í leikjum næturinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Bæði lið hafa því jafnað metin í viðureignum sínum.

San Antonio vann New Orleans 100-80. Tim Duncan var með 22 stig og 15 fráköst fyrir San Antonio og Tony Parker 21 stig. Chris Paul skoraði 23 stig fyrir New Orleans.

Utah vann Los Angelese Lakers 123-115. Deron Williams skoraði 29 stig fyrir Utah en í liði Lakers var Kobe Bryant stigahæstur með 33 stig.

Staðan í báðum rimmunum er 2-2.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×