Fótbolti

Markvörðurinn Asenjo eftirsóttur af stórliðum

Elvar Geir Magnússon skrifar
Sergio Asenjo.
Sergio Asenjo.

Real Valladolid á Spáni er tilbúið að hlusta á tilboð í markvörðinn Sergio Asenjo. Mörg stórlið í Evrópu fylgjast með Asenjo sem ætlar að taka ákvörðun um framtíð sína í desember.

Njósnarar frá Manchester United fylgdust með Asenjo í U21 landsleikjum á dögunum. Asenjo heillaði þá og United hyggst leggja fram tilboð í hann en hann er 19 ára

Liverpool bauð í Asenjo á síðasta ári en því var hafnað, þá sýndi Tottenham áhuga í sumar. Asenjo á þrjú ár eftir af samningi sínum en auk þessara ensku liða þá eru Barcelona, Valencia og AC Milan einnig að fylgjast með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×