Fótbolti

Endurfæddur Eto´o

NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona tileinkaði þjálfara sínum Pep Guardiola markið sem hann skoraði gegn Sporting í Meistaradeildinni í gærkvöldi og segist hafa fundið nýtt líf hjá félaginu.

Talið var víst að Eto´o færi frá Barrcelona í sumar en hann afréð að vera um kyrrt eftir fundi með nýja þjálfaranum.

"Ég vil tileinka Pep markið sem ég skoraði. Markið mitt eða mörkin okkar voru ekki svo mikilvæg, heldur sigurinn. Það eina sem ég veit er að nú líður mér aftur eins og mér leið þegar ég var 19 ára og var að hefja ferilinn hjá Mallorca. Meiðslin og taugastríðið eru að baki og ég er viss um að nú fari ég að skora aftur," sagði Kamerúninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×