Viðskipti innlent

Eimskip fellur um 25 prósent

Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um 25 prósent á fyrstu mínútunum í Kauphöllinni í dag. Átta viðskipti standa á bak við hrunið upp 2,6 milljónir króna. Gengi bréfa í Eimskip standa nú í sex krónum á hlut. Fyrir ári stóð gengi bréfa í Eimskipafélaginu í 39,7 krónum á hlut og hefur það því fallið um 85 prósent síðan þá. Þar af hefur það fallið um rúm 58 prósent frá mánaðamótum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×