Íslenski boltinn

Þór/KA lagði Stjörnuna

Einn leikur fór fram í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þór/KA vann góðan 2-0 sigur á Stjörnunni fyrir norðan 2-0. Það voru þær Ivana Ivanovic og Rakel Hönnudóttir sem skoruðu mörk norðanliðsins í síðari hálfleik.

Stjarnan situr sem fyrr í þriðja sæti deildarinnar með 20 stig á eftir Val (33 stig) og KR (30 stig). Þór/KA situr í sjötta sætinu með 13 stig.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×