Bíó og sjónvarp

Heimildarmynd um Sálina í kvöld

Heimildarmynd Jóns Egils um Sálina hans Jóns míns verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld.
Heimildarmynd Jóns Egils um Sálina hans Jóns míns verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld.

Heimildarmyndin Hér er draumurinn í leikstjórn Jóns Egils Bergþórssonar, sem fjallar um Sálina hans Jóns míns, verður frumsýnd í Háskólabíói í kvöld. Í myndinni, sem er í fullri lengd, er farið yfir 20 ára feril sveitarinnar. Gríðarlega fjölbreytt myndefni var notað við vinnslu myndarinnar ásamt gömlum viðtölum sem komu að góðum notum.

„Það er komið ár síðan við byrjuðum að móta þetta og átta okkur á því hvernig mynd þetta ætti að vera," segir Jón Egill. „Síðan fór vinnan af stað í vor að útvega allt þetta myndefni, sem var alveg gríðarlegt."

Þótt Sálin hafi verið afar vinsæl um árin hefur hún átt í innbyrðis vandræðum eins og kemur fram í myndinni. „Þótt það hafi gengið svona vel í músíkinni er þetta átakaband og þeir hafa margoft tekið sér hálfsárs leyfi, oft í kjölfarið á innbyrðisdeilum og óánægju. Við erum ekkert að draga fjöður yfir það. En það var mjög gaman að gera þessa mynd, sérstaklega út af því að þetta eru menn sem eru ekki alltaf að hjakka í sama farinu," segir Jón Egill.

- fb












Fleiri fréttir

Sjá meira


×