Fótbolti

Huntelaar á leið til Real Madrid

Elvar Geir Magnússon skrifar
Klaas Jan Huntelaar fær það hlutverk að fylla skarðið sem Ruud van Nistelrooy skilur eftir sig.
Klaas Jan Huntelaar fær það hlutverk að fylla skarðið sem Ruud van Nistelrooy skilur eftir sig.

Hollenski sóknarmaðurinn Klaas Jan Huntelaar er á leið frá Ajax í heimalandinu og til spænska stórliðsins Real Madrid. Frá þessu greina spænskir fjölmiðlar í kvöld.

Hans hlutverk verður að fylla skarðið sem Ruud van Nistelrooy skilur eftir sig en Nistelrooy leikur ekki meira á tímabilinu vegna meiðsla. Huntelaar er 25 ára og mun ganga til liðs við Real Madrid í janúar ef heimildir spænskra fjölmiðla eru réttar.

Huntelaar hefur raðað inn mörkum í hollensku deildinni síðustu ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×