Sport

Valverde hefur forystu á Tour de France

NordcPhotos/GettyImages

Spænski hjólreiðagarpurinn Alejandro Valverde hefur forystu eftir fyrsta áfangann í Frakklandshjólreiðunum sem fram fór í dag. Hjólaðir voru tæpir 200 kílómetrar frá Brest til Pulmelac.

Valverde er talinn einn sigurstranglegasti keppandinn í keppninni í ár, en hinn 28 ára gamli Spánverji náði ekki forystunni fyrr en á síðustu sjö kílómetrunum í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×