Fótbolti

Enn tapar Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Frank Rijkaard fylgist með sínum mönnum í kvöld.
Frank Rijkaard fylgist með sínum mönnum í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Barcelona tapaði í kvöld lokaleik sínum á heimavelli undir stjórn Frank Rijkaard. Barcelona hefur unnið einn leik í deildinni síðan í mars.

Barcelona hefur aðeins fengið sex stig af 21 mögulegu í síðustu sjö leikjum sínum. Í kvöld tapaði liðið fyrir Mallorca, 3-2, eftir að liðið komst í 2-0 forystu.

Thierry Henry kom Barcelona yfir á sautjándu mínútu og Samuel Eto'o bætti öðru við á 56. mínútu.

Lionel Messi fór af leikvelli á 63. mínútu og fjórum mínútum síðar skoraði Borja Valero fyrsta mark Mallorca. Webo bætti öðru við á 70. mínútu og D. Güiza skoraði svo sigurmarkið á 90. mínútu.

Til að bæta gráu á svart fékk Edmilson sitt annað gula spjald í lok leiksins og þar með rautt. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Barcelona vegna meiðsla en aðeins sextán leikmenn A-liðsins eru heilir.

Börsungar eru nú átján stigum á Real Madrid sem gerði í kvöld 2-2 jafntefli við Real Zaragoza á útivelli.

Oliveira kom heimamönnum yfir en Ruud van Nistelrooy jafnaði metin áður en fyrri hálfleikur var allur. Robinho kom kom svo Madrídingum yfir á 77. mínútu en Sergio jafnaði metin fjórum mínútum síðar.

Villarreal er í öðru sæti deildarinnar, tíu stigum á undan Villarreal, eftir 2-0 sigur á Espanyol. Javi Venta og Robert Pires skoruðu mörk liðsins.

Atletico vann 1-0 sigur á Deportivo og er nú með 64 stig, rétt eins og Barcelona. Efstu fjögur liðin í deildinni komast í Meistaradeild Evrópu og þó svo að Barcelona eigi enn tölfræðilegan möguleika á því að falla niður í fimmta sætið þyrfti Sevilla að vinna með sjö marka mun í lokaleik sínum og treysta á að Börsungar tapi sínum leik til að svo verði.

Sevilla er þó með betra markahlutfall en Atletico og getur því með sigri í lokaumferðinni komist upp í fjórða sætið ef Atletico tapar fyrir Valencia í lokaumferðinni.

Sevilla mætir Athletic í lokaumferðinni og Barcelona mætir Real Murcia á útivelli.

Valencia bjargaði sér endanlega frá falli með 5-1 sigri á Levante í kvöld.

Fjögur lið geta enn fylgt Real Murcia og Levante í spænsku B-deildina. Zaragoza er í fallsætinu fyrir lokaumferðina með 42 stig. Osasuna og Recreativo eru með 43 stig og Valladolid með 44 stig.

Tvö síðastnefndu liðin mætast í lokaumferðinni. Zaragoza mætir Mallorca á útivelli og Osasuna mætir Racing á útivelli.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×