Körfubolti

Mesta áhorf í fjögur ár

Jólaleikurinn var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport
Jólaleikurinn var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport NordicPhotos/GettyImages

Leikur LA Lakers og Boston Celtics í NBA deildinni á jóladagskvöld fékk mesta áhorf sem deildarleikur hefur fengið í rúm fjögur ár.

Leikurinn var endurtekning á einvígi þessara fornfrægu liða í lokaúrslitunum í sumar, en öfugt við það sem þá gerðist - var það Lakers-liðið sem hafði betur á jóladag.

Leikur Lakers og Celtics á ABC sjónvarpsstöðinni fékk helmingi meira áhorf en jólaleikur stöðvarinnar í fyrra. Þá áttust við LA Lakers og Phoenix Suns.





NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×