Fótbolti

Fabregas jákvæður

Fabregas og félagar náðu ekki að skora í kvöld
Fabregas og félagar náðu ekki að skora í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas kaus að horfa á björtu hliðarnar eftir að lið hans Arsenal gerði markalaust jafntefli við Fenerbahce á heimavelli sínum í kvöld.

Margir hafa eflaust reiknað með markasúpu á Emirates eftir að Arsenal vann fyrri leik liðanna 5-2 í síðasta mánuði. Annað var þó uppi á teningnum í kvöld.

"Við vorum mikið með boltann eins og venjulega og spiluðum þá sundur og saman. Það vantaði aðeins meiri hreyfanleika á síðasta þriðjungi vallarins og kannski vorum við aðeins of spenntir. Það er dálítið svekkandi að fá svona mörg færi en ná ekki að skora, en þetta er ekki bara neikvætt. Við spiluðum ágætlega," sagði Fabregas.

"Við erum að vísu með nokkuð marga leikmenn sem eru í meiðslum, en hjá liði eins og Arsenal er það engin afsökun," bætti hann við.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×