27. mars Ólafur Sindri Ólafsson skrifar 27. mars 2008 06:00 Dagurinn í dag er af tvennum sökum merkisdagur fyrir miðaldra karlmenn með grátt í vöngum. Fyrir nákvæmlega áratug hrökk herra Porsche upp af og sama dag lagði matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna blessun sína yfir Viagra. Það er alkunna að litlu bláu pillurnar hafa hjálpað fjölda karlmanna að fá uppreisn æru. Það sem er þó enn áhugaverðara er að þrátt fyrir að umræddar pillur hafi nákvæmlega sömu áhrif á konur ákvað Pfizer-lyfjafyrirtækið (eftir 8 ára rannsóknir á áhrifum Viagra á konur - meirihluti hverra átti sér stað eftir að lyfið var sett í sölu) að gleyma öllum áætlunum sínum um að markaðssetja lyfið á þann veg. Ekki vegna skorts á verkun - það þótti meira að segja sannað að því aukna blóðstreymi sem Viagra framkallaði í kynfærum kvenna fylgdi ekki bara aukin kynörvun heldur einnig stóraukin ánægja af kynlífi - heldur vegna þess að það var einfaldlega ekki virknin sem sóst var eftir. Vísindamennirnir voru vonsviknir vegna þess að þeim tókst ekki að framkalla kynlífslöngun eftir pöntun. Því þótt lyfið hafi virkað fullkomlega gat kynlöngun, eða réttara sagt skortur á slíkri, enn staðið í vegi fyrir því að pillan leiddi eindregið og undantekningalítið til trylltra kynmaka. Þetta var auðvitað ótæk niðurstaða. Fyrirtækið gafst því upp á að reyna að töfra konur í bólið með lyfjum sem verkuðu á kynfæri þeirra og beina nú sjónum að kvenheilanum. Enn bíðum við eftir að þessar framhaldsrannsóknir beri tilætlaðan árangur. Sem samkvæmt öllu hlýtur að vera sá að búa til annarrar kynslóðar nauðgunarlyf - pillu sem framkallar ekki hinar alþekktu leiðindaukaverkanir sem fylgja óhjákvæmilega þeim meðulum sem nú eru í boði. Það er auðvitað miklu skemmtilegra að fórnarlambið sé með meðvitund. Gallinn við konur er nefnilega, eins og dr. Marianne Legato hjá Pfizer orðaði það, sá að þær komast stundum ekki í stuð fyrr en í miðjum klíðum. Og bætti við: „Við þurfum að finna pillu sem platar konur til að halda að þær finni fyrir nánd." Því hver hefur not fyrir lyf sem eykur ánægju kvenna af kynlífi - þegar útlit er fyrir að hægt sé að hræra saman í pillu sem fær þær til að stunda kynlíf hvort sem það veitir þeim ánægju eða ekki? Borðleggjandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ólafur Sindri Ólafsson Mest lesið Fellur helsti stuðningsmaður menningarmála af þingi? Magnús Logi Kristinsson Skoðun „Við andlát manns lýkur skattskyldu hans“ Þórður Gunnarsson Skoðun Sjálfstæðismenn boða víst skattalækkanir á þá efnamestu Haukur V. Alfreðsson Skoðun Nýtanleg verðmætasköpun um allt land Jóhann Frímann Arinbjarnarson Skoðun Viltu borga 200 þús á mánuði eða 600 þús á mánuði af íbúðinni? Hildur Þórðardóttir Skoðun Gerum betur Hilmar Björnsson Skoðun Dýrkeyptur aðgangur Stella Guðmundsdóttir Skoðun ESB kærir sig ekkert um Ísland í jólagjöf Ole Anton Bieltvedt Skoðun Íslenskufræðingurinn Sigmundur Davíð Hákon Darri Egilsson Skoðun Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir Skoðun
Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir Skoðun
Við þurfum stjórnmálamenn sem skilja mikilvægi stærstu atvinnugreinar landsins Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir Skoðun