Sport

Sean Taylor látinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Fyrir utan heimili Taylor í gær.
Fyrir utan heimili Taylor í gær. Nordic Photos / Getty Images

Sean Taylor, leikmaður Washington Redskins í NFL-deildinni í Bandaríkjunum, lést af skotsárum sínum í dag.

Talið er að Taylor hafi verið skotinn af innbrotsþjófi á heimili sínu í gær nærri Miami. Hann náði aldrei meðvitund eftir að hann var fluttur á sjúkrahús.

Hann var 24 ára gamall.


Tengdar fréttir

Leikmaður í NFL skotinn á heimili sínu

Sean Taylor, leikmaður Washington Redskins í ameríska fótboltanum, er í slæmu ástandi á sjúkrahúsi í Miami eftir að hafa orðið fyrir skoti á heimili sínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×