Menning

Ljóð á tungu

Erla Gisladottir skrifar

Ljóðasamkeppnin Ljóð á tungu - ljóð um tungu er haldin ár hvert á vegum Fagráðs í íslensku við Kennaraháskóla Íslands í tilefni af degi íslenskrar tungu. Í ár var leitað eftir efni sem tengist Jónasi Hallgrímsyni á einhvern hátt enda vel við hæfi á 200 ára afmælisdegi skáldsins.

Lára Óskarsdóttir nemandi í íslensku á 4. ári grunnskólabraut orti vinningsljóðið; Undir áhrifum. Lára þakkaði ljóðagerðina hvatningu frá Þórði Helgasyni kennara sínum. Verðlaunin ætlar Lára að nýta í útgáfu af sinni fyrstu ljóðabók.

Undir áhrifum

Í nótt dreymdi mig draum um mann sem stóð upp á

ílöngu fjalli

Hann hélt á biðukollu og blés yfir landið.

Ég spurði: hvað ertu að gera?

Hann rétti mér sölnað blómið og sagði:

Blástu sem þú getur því hvert frjó sáldrast á tungur um allt land og gerir fólkið

Að þjóð.

Ég blés þar til lítil hönd straukst við mína.

Snáði með bústnar kinnar horfði í augu mér

Er hann seildist eftir viðkvæmum stilknum

Ég sleppti takinu og leit eftir fjallinu.

Þar stóðu menn, konur og börn, hvert með sinn stilk.

Ég leit á manninn sem snerist á hæli og sagði

Ég bið að heilsa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.