Enski boltinn

Tækling Joey Barton til skoðunar

Etuhu var ekki sáttur við tæklingu Barton í gær eins og sjá má á þessari mynd
Etuhu var ekki sáttur við tæklingu Barton í gær eins og sjá má á þessari mynd NordicPhotos/GettyImages

Aganefnd enska knattspyrnusambandsins ætlar að taka til skoðunar tæklingu miðjumannsins Joey Barton á Dickson Etuhu í leik Newcastle og Sunderland í gær. Tæklingin þótti nokkuð glæfraleg og lenti leikmönnunum saman í kjölfarið.

Martin Atkinson dómari gerði ekki athugasemd við atvikið þegar það átti sér stað, en þó gæti Barton fengið allt að þriggja leikja bann ef rannsókn aganefndarinnar leiðir í ljós að hann hafi gerst illa brotlegur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×